| Sigurveig's profilealbert óskPhotosBlogLists | Help |
|
albert óskJanuary 27 Broddar Ég læt aðra um að tjá sig um alvöru lífsins. Hér er það sem mér liggur helst á hjarta: Nú hefur verið fljúgandi hálka á götum Akureyrar í margar vikur. Ég veit að bæjaryfirvöld eru að apa eftir höfuðborginni með því að salta götur í stað þess að sanda því það er í tísku að stuðla að minnkun svifryks. Allt gott og blessað, en ég veit ekki betur en gangstéttir í Reykjavík séu sandaðar (a.m.k. seinast þegar ég gekk á reykvískri gangstétt), sem er skynsamleg aðgerð í baráttunni gegn fjölgun beinbrota. Á Akureyri er svifryksbaráttan þó greinilega í fyrirrúmi, og þykir mér láta nærri að söndun gangstétta sé með öllu óþörf þar sem íbúarnir geti bara fengið sér mannbrodda. Ég bíð bara eftir að þeir hætti að kveikja á ljósastaurunum því við getum bara fengið okkur höfuðljós. January 08 klósettÞað tekur fólk mislangan tíma að koma sér í gang eftir jólafrí. Ekki er ólíklegt að morkið fólk eigi erfiðara en aðrir með að laga sig að hinum breyttu aðstæðum. Eins og áður hefur komið fram tilheyri ég hinum morknu. Í gærmorgun var ég svo syfjuð að ég var ekki viss hvort ég væri sofandi eða vakandi, dottaði á meðan ég burstaði tennurnar og þorði varla að fara á klósettið af ótta við að sofna þar og mæta ekki í vinnuna fyrr en um kaffileytið. December 23 kökur Þeir sem eru mér kunnugir gera sér flestir grein fyrir því að húsmóðureiginleikar eru mér ekki eðlislægir og binda því litlar vonir við að tólf heimabakaðar sortir verði á boðstólnum á heimili mínu þessi jólin. Þrátt fyrir ómyndarskapinn finnst mér ég eiga hrós skilið fyrir viðleitni, því fyrir nokkru ákvað ég að hér yrðu í það minnsta bakaðar piparkökur. Þar sem ég er, eins og áður segir, ómyndarleg í hjarta mínu, gerðist ég svo ósvífin að kaupa tilbúið piparkökumix frá Kötlu. Í gær var svo, eftir óþreyjufulla bið, komið að stóru stundinni. Þá var að sjálfsögðu byrjað á því að lesa leiðbeiningarnar sem fylgdu með mixinu. Þær voru svohljóðandi: Allt sem þarf er 1 poki piparkökumix, 150 gr smjörlíki, 75 gr. mjólk, 75 gr. síróp. Hrærivél með hnoðara, bökunarpappír, bökunarplata, hveiti. Ókey. Í fyrsta lagi: hverjir halda þeir hjá Kötlu að það séu sem kaupi svona tilbúið mix? Varla eru það ofvirku húsmæðurnar sem veita því varla eftirtekt þegar þær svo til ósjálfrátt snýta einni piparkökuuppskrift út úr erminni í viðbót við hinar 11 sortirnar? Er ekki líklegra að kaupendurnir séu fólk eins og ég sem hefur ekki bakað síðan í heimilisfræði í sjöunda bekk og langar til að koma sér auðveldlega gegnum jólabaksturinn? Og finnst ykkur líklegt að slíkt fólk eigi vigt? Eða hrærivél með hnoðara? Ég hafði ekki hugsað mér að eyða kvöldinu í að gúgla eðlisþyngd sýróps, en fannst það þó skömminni skárra en að keyra bæinn á enda til að fá lánaða vigt. Þegar deigið var loksins tilbúið setti ég það inn í ísskáp, annars vegar af því að ég ætlaði að baka daginn eftir og hins vegar af því að í mínu ungdæmi var piparkökudeig kælt í ísskáp yfir nótt áður en það var flatt út. Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag, við það að míga í mig af spenningi yfir að komast í piparkökubaksturinn og fá jólalykt í húsið, var deigið orðið að steini. Ekki einungis var það límt pikkfast við skálina heldur brotnaði hnífurinn sem ég stakk í það í von um að ná mér í örlítinn deigbita. Héðan í frá mun ég sniðganga vörur frá Kötlu. Eða a.m.k. þangað til ég hef jafnað mig. Í von um að bjarga deginum fékk ég piparkökuuppskrift hjá mömmu og tókst að baka úr henni ljótar og vondar kökur. Sem betur fer hafði ég bakað engiferkökur eftir gamalli fjölskylduuppskrift í fyrradag, þannig að þó að sjálfstraustið sé ekki upp á sitt besta í augnablikinu þá er það þó ekki í molum. December 09 piparNú er ég stödd í óbyggðum, svo skuggalega nálægt sjálfu Sjálfskaparvíti að ég gæti hæglega ráfað ofan í það í morgunmyglunni. Tuttugu metrum frá mér veður ógnarhátt mastur í klaka og bleikri dagrenningu. Sjálf sit ég inni í gámi og læt mig dreyma um að komast til mannabyggða um helgina til að baka piparkökur. November 15 kona Það er kona, sem vinnur í sömu byggingu og ég, sem er alltaf hress. Og það er ekkert grín, hún er bara alltaf hress. Ég, sem þjáist af mikilli morgunmyglu og er mjög gjarnan morkin fram að hádegi og jafnvel lengur, dáist í hjarta mínu að slíku fólki, þó það fari auðvitað nett í taugarnar á mér þegar ég er sem morknust að einhver sé svona hress. En á svona meðalmorknum vetrardegi er ekki laust við að það birti yfir þegar hressa konan skilyrðislaust býður mér brosandi góðan daginn af slíkri sannfæringu að það er engu líkara en að hún hafi fæðst til þess. Af þessu tilefni hef ég bætt einu atriði við áramótaheitalistann minn og raðað heitunum eftir erfiðleikastigi. Á þessari stundu hljóðar hann svo: Númer 1: Læra að prjóna. Númer 2: Ganga í vinnuna. Númer 3: Vera alltaf hress. November 13 frú Nú hefur komið í ljós að fyrsti október var alls ekki versti dagur Íslandssögunnar því síðan þá hefur hver dagurinn öðrum verri runnið upp. Í ljósi þessa hef ég ákveðið að fresta áætlunum mínum um að gerast fín frú á Akureyri um óákveðinn tíma. Samkvæmt áætluninni ætlaði ég að gerast fín frú um leið og ég kláraði skóla þar sem ég gerði ráð fyrir að þá myndi fjárhagurinn batna. Meðal annars var planið að fara reglulega í klippingu á hárgreiðslustofu í stað þess að klippa hárið með eldhússkærunum auk þess að láta snyrtifræðing á einhverri ægilega fínni stofu plokka og lita á mér augabrúnirnar sirka mánaðarlega í staðinn fyrir að gera það sjálf með misjöfnum árangri inni á klósetti heima hjá mér þegar ég nenni. Þessum lystisemdum hef ég sumsé séð mig knúna til að skjóta á frest. Því brá ég mér í apótek á dögunum og keypti augabrúnalit. Þegar ég loksins drattaðist til að nenna að nota hann kom í ljós að hann var blár. Ég væri alveg til í að vita af hverju það er til blár augabrúnalitur. October 29 rjómi Eftir að hafa látið mig dreyma um að leggja niður störf mín og stefna þess í stað á heimsfrægð í rúningi hef ég ákveðið að geyma það til betri tíma og halda áfram að einbeita mér að núverandi starfi mínu. Skemmst er frá því að segja að nú er rjómablíða norðaustanlands, sem er ágætis tilbreyting frá blindbylnum sem einkennt hefur síðustu daga, ég heyri enn Elsu Lund auglýsingar sjötíu sinnum á dag og einhverra hluta vegna er ég búin að sjá alla "Gott kvöld" þættina gegn vilja mínum. Lítið annað markvert er í fréttum. |
|
||
|
|